170 nemendur tóku þátt

Alls tóku 170 nemendur grunnskóla á Norðurlandi vestra, Fjallabyggð og Dalvík þátt í forkeppni Stærðfræðikeppni 9. bekkinga 2014 sem haldin var í marsmánuði. Keppnin er samstarfsverkefni Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Menntaskólans á Tröllaskaga.

Á vef FNV segir að úrslitakeppnin fari fram í maí og verði auglýst nánar strax eftir páskafrí.

Hér fara á eftir nöfn 15 efstu keppendanna í stafrófsröð:

  • Anton Þór Einarsson, Höfðaskóli
  • Björn Vilhelm Ólafsson, Grunnskóli Fjallabyggðar
  • Elínborg Ósk Halldórsdóttir, Varmahlíðarskóli
  • Eyþór Hermannsson, Árskóli
  • Guðjón Alex Flosason, Grunnskólinn á Hólmavík
  • Gunnar Freyr Þórarinsson, Varmahlíðarskóli
  • Halldór Broddi Þorsteinsson, Árskóli
  • Heimir Sindri Þorláksson, Grunnskólinn austan Vatna
  • Hilmar Logi Óskarsson, Húnavallaskóli
  • Hjörleifur H. Sveinbjarnarson, Dalvíkurskóli
  • Kristrún Hilmarsdóttir, Blönduskóli
  • Páll Halldórsson, Höfðaskóli
  • Sabrina Rosazza, Dalvíkurskóli
  • Sara María Gunnarsdóttir, Grunnskóli Fjallabyggðar
  • Þorgeir Örn Sigurbjörnsson, Grunnskóli Fjallabyggðar

 

Fleiri fréttir