19920 hafa ritað nafn sitt inn á kjosum.is
Hópur fólks hefur tekið sig saman inni á vefnum www.kjosum.is þar sem skorað er á alþingismenn að hafna frumvarpi um ríkisábyrgð vegna Icesave reikninga Landsbankans. Jafnframt heita þeir sem undir áskorunina skrifa á herra Ólaf Ragnar Grímsson, að synja því lagafrumvarpi staðfestingar verði það samþykkt á alþingi.
Já lýsa þeir sem skrifa undir yfir vilja sínum til þess að þjóðin fái að kjósa um hið umdeilda Icesave mál. Að hópnum standa Axel Þór Kolbeinsson, Baldur Ágústsson, Borghildur Maack, Frosti Sigurjónsson, Guðmundur Ásgeirsson, Halldóra Hjaltadóttir, Hallur Hallsson, Helga Þórðardóttir,
Jón Baldur Lorange, Jón Gíslason, Jón Helgi Egilsson, Jón Valur Jensson, Loftur Altice Þorsteinsson,
Rakel Sigurgeirsdóttir, Sigurbjörn Svavarsson,Sigurður Jónas Eggertsson, Sveinbjörg Birna Sveinbjörnsdóttir,
Sveinn Tryggvason, Sveinn Óskar Sigurðsson, Viktor J. Vigfússon og Þorvaldur Þorvaldsson.
Þegar fréttin er skrifuð hafa 19920 ritað nafn sitt á listann.