2. Landsmót UMFÍ 50+ verður haldið í Mosfellsbæ

Á stjórnarfundi Ungmennafélags Íslands sem haldinn var í  gær var ákveðið að 2. Landsmót UMFÍ 50 + verði í umsjón Ungmennasambands Kjalarnesþings, UMSK, með mótsstað í Mosfellsbæ. Fimm sambandsaðilar sóttu um að halda mótið en auk UMSK voru það USAH með Blönduós sem mótsstað, UMSB, Borgarnes, UÍA, Norðfjörður og UMSE með Dalvík sem mótsstað.
Það var mat stjórnar að allir umsækjendur væru í stakk búnir til að taka að sér framkvæmd mótsins en þetta varð niðurstaðan að þessu sinni.
Mótið er sérstaklega ætlað einstaklingum 50 ára og eldri. Framkvæmd mótsins verður í höndum Ungmennafélags Íslands og UMSK í samstarfi við Mosfellsbæ.
Fyrsta Landsmót UMFÍ 50+ var haldið á Hvammstanga sl. sumar.

 

Fleiri fréttir