21. ársþing SSNV

21. Ársþing SSNV verður haldið á Sauðárkróki dagana 17. - 19. október næstkomandi. Eftir kosningu starfsmanna þingsins á fimmtudeginum verður dagskráin að mestu leiti helguð málefnum fatlaðra. Á föstudeginum verða fyrst lagðar fram starfsskýrslur en síðan munu sérstakir gestir þingsins, þau Hanna Birna Kristjánsdóttir og Halldór Halldórsson ávarpa þingið.

Seinni hluti föstudagsins mun svo fjalla um ungt fólk, verkefni sveitarfélaga og samstarf. Á laugardaginn fara fram nefndarstörf og afgreiðsla nefndarálita, ársreikninga og fjárhagsáætlana. Gunnar Bragi Sveinsson verður gestur þingsins þennan dag og mun flytja ávarp.

Fleiri fréttir