25 ára bæjarafmæli

Í gær voru liðin 25 ár síðan Blönduós hlaut bæjarréttindi og hefur eftir það kallast Blönduósbær og hélst það nafn áfram við sameiningu við Engihlíðarhrepp 9. júní 2002. Upphaflega tilheyrði Blönduós Torfalækjarhreppi, en varð að sérstökum hreppi, Blönduhreppi árið 1914. Sagt er frá þessu á vefnum Húni.is.

Blönduhreppur stækkaði 1. febrúar 1936 þegar hann fékk skika úr landi Engihlíðarhrepps. Blönduósbæ Samkvæmt Hagstofu Íslands voru íbúar Blönduóshrepps 241 talsins árið 1914 en árið 1988 þegar Blönduós varð bær voru þeir 1.083. Þann 1. janúar síðastliðinn voru íbúar Blönduósbæjar 878 talsins.

Fleiri fréttir