27. landsmót UMFÍ um næstu helgi

Um næstu helgi verður 27. Landsmót Ungmennafélags Íslands verður haldið á Selfossi. Frjálsíþróttakeppnin stendur yfir frá föstudegi til sunnudags og þar keppa 10 Skagfirðingar. Auk keppninnar í frjálsíþróttum á UMSS keppendur í öðrum íþróttagreinum. Frjálsíþróttakeppnin hefst kl. 11 dagana frá föstudegi til sunnudags. Frá þessu segir á vef Tindastóls og þar er skorað á Skagfirðinga að fjölmenna á Selfoss og hvetja sitt fólk til dáða. Keppendur UMSS í frjálsíþróttunum eru:

Daníel Þórarinsson, Fríða Ísabel Friðriksdóttir, Guðjón Ingimundarson, Gunnhildur Dís Gunnarsdóttir, Ísak Óli Traustason, Jóhann Björn Sigurbjörnsson, Sveinbjörn Óli Svavarsson, Vignir Gunnarsson, Þorgerður Bettína Friðriksdóttir og Þóranna Ósk Sigurjónsdóttir.

Fleiri fréttir