34. árgangur Húna kominn út

Húni ársrit Ungmennasambands Vestur-Húnavatnssýslu er kominn út. Þetta er 34. árgangur ritsins vegna ársins 2012. Í ritinu eru frásagnir ljóð og annar fróðleikur er tengist Húnaþingi vestra.  Einnig er minnst látinna í sveitarfélaginu á árinu 2012 auk ítarlegra frétta úr hinum ýmsu byggðum sveitarfélagsins sem alls sjö fréttaritarar hafa skrásett. „Forsíðuviðtalið“ er að þessu sinni við Jóhannes Ragnarsson bónda á Jörva í Víðidal.

Veg og vanda að útgáfu Húna hefur fimm manna ritnefnd sem unnið hefur óeigingjarnt sjálboðastarf við útgáfuna í fjölda ára og færir stjórn USVH þeim alúðarþakkir fyrir sitt mikla framlag í þágu alþýðumenningar auk þess að styrkja um leið ungmennastarf sambandsins. Á meðfylgjandi mynd er núverandi ritnefnd þau: Agnar J Levý í Hrísakoti, Magnús Guðmundsson á Staðarbakka, Ingi Bjarnason Hvammstanga, Kristín Jóhannesdóttir Gröf og Jónína Sigurðardóttir á Hvammstanga.

Ritið er að berast áskrifendum þessa dagana. En það er einnig til sölu hjá framkvæmdastjóra USVH Þorsteini Guðmundssyni sími 865 2092, netfang: usvh@usvh.is og í verslun KVH.

/GHS

Fleiri fréttir