43 fjölskyldur missa heimili sín í dag
Í tilkynningu frá Hagsmunasamtökum heimilanna segir að 43 fjölskyldur missi heimili sín í dag er þau verða boðin upp af sýslumönnum í Reykjavík, Hafnarfirði, Kópavogi, Akureyri og Keflavík. Að sögn Vilhjálms Bjarnasonar, „ekki fjárfestir“, formanns stjórnar samtakanna hafa þau margoft krafist þess að nauðungarsölur vegna neytendalána verði stöðvaðar, enda eru þær ólögmætar nema dómsúrskurður liggi fyrir. Fulltrúar þeirra munu eiga fund með innanríkisráðherra, Hönnu Birnu Kristjánsdóttur þar sem þessi krafa verður ítrekuð enn og aftur.
„Nauðungarsölurnar fara auk þess fram meðan beðið er boðaðra aðgerða ríkisstjórnarinnar um leiðréttingu höfuðstóls lána, sem í einhverjum tilfellum myndu bjarga þessum fjölskyldum frá því að missa heimili sín, næðu þær fram að ganga. Nauðungarsölur eru ekki afturkræfar samkvæmt núgildandi lögum,“ segir Vilhjálmur.