50 ára fermingarbörn hittust á Blönduósi

 Árið 1961 fermdi séra Þorsteinn B. Gíslason 13 unglinga í Blönduóskirkju. Í tilefni 50 ára fermingarafmælis hittust svo þessir unglingar þann 22. október s.l. og rifjuðu upp gamla daga. Hópurinn fór í vinabæjarheimsókn til Skagastrandar og Spákonuhofið, Árnes og Kántrýsafnið heimsótt. Fékk hópurinn frábærar móttökur og ógleymanlega leiðsögn um söfnin. Síðan var kvöldverður á Kiljunni en Kiljan er staðsett í Aðalgötu 2 sem var heimili Sillu Hermanns hér í denn.

Á sunnudeginum var síðan keyrt um Blönduós og að því loknu héldu allir til síns heima. Á myndinni sem fylgir eru frá vinstri Jakob Skúlason, Kristján R. Pétursson, Sesselja Þórðardóttir, Dóra Halldórsdóttir, Særún Brynja Svavarsdóttir, Sigurlaug Þóra Hermannsdóttir, Bjarni Pálsson og Hrönn Sigurgeirsdóttir. Í hópinn vantaði Benedikt Ólafsson, Einar Kristmundsson, Hildi Sverrisdóttur, Jón Björnsson og Gest Þórarinsson, sem er látinn.

Það er fullvíst að þessi hópur hittist aftur, hvort sem það verður eftir 5 eða 10 ár.

/Húni.is

Fleiri fréttir