600. vísnaþátturinn í Feyki vikunnar
Í Feyki í dag ber að líta vísnaþátt númer 600 en Guðmundur Valtýsson bóndi á Eiríksstöðum í Svartárdal hefur haft veg og vanda að gerð hans frá upphafi en hann hóf göngu sína 1. apríl árið 1987. Það var á balli í Miðgarði sem Guðmundur talaði við þáverandi ritstjóra Feykis, Ara Sigurðsson, og hugmyndin að vísnaþætti í Feyki varð að veruleika.
-Það bar þannig til að ég fór á árshátíð Hestamanafélagsins Stíganda og hitti þáverandi ritstjóra Feykis, Ara Sigurðsson sem kenndur er við Holtsmúla. Ég segi honum að mér finnist vanta vísnaþátt í blaðið því það sé svo mikið af vísum og hagyrðingum á þessu svæði okkar. Hann tekur mig á orðinu og skorar á mig að gera þetta en ég reyndar neitaði í fyrstu. Ég ætlaðist ekki til þess að ég sæi um þetta en seinna um nóttina jánkaði ég þessu og úr varð að fyrsti þátturinn birtist 1. apríl 1987 og einmitt með efni af þessari samkomu. Strax í upphafi var tekin ákvörðun um að hafa þáttinn í öðru hverju blaði en það hefur komið fyrir að það hafi aðeins brenglast en þá kemur þátturinn út tvisvar í röð, sagði Guðmundur í viðtali við Feyki þegar þættirnir urðu hálft þúsund. Hann segir að fljótt hafi komið í ljós að nauðsynlegt þótti að númera þættina því fólk var að koma með athugasemdir eða vitna í fyrri þætti og þá var betra að hafa þá auðmerkta.
Í vísnaþætti dagsins eru fjölbreyttar vísur og stökur að vanda og meðal annars sagt frá viðskiptum Alberts Sölvasonar og Ísleifs Gíslasonar kaupmanns á Króknum en einhverju sinni bar svo við að Albert ákvað að gantast ögn við Ísleif og orti eftirfarandi vísu.
Maður einn vann mikla þraut
mesti ofurhugi.
Ísleifur sem eina skaut
andarnefju á flugi.
Kaupmaður, sem ekki mun hafa verið vanur að láta eiga hjá sér í þess háttar skylmingum, sendi fljótt til baka.
Maður einn vann mikla þraut
mestur reyndist öllum.
Uxa á flugi Albert skaut
uppi í Staðarfjöllum.
Þá komst einhvern tímann á kreik á Króknum blaðsnepill nokkur sem ónefndur kaupmaður þar í bæ mun hafa krotað á, með illa sleiktum blýanti, pantanir á ýmsum varningi sem hann hugðist fá frá birgjum fyrir sunnan. Gaf þar meðal annars að líta eftirfarandi: Þrjá dunka bolsíur blandaðar, 5 kassa karamellur, 6 dúsín suðusúkkulaði, bæði brögðin, það er vanillubragð og þetta með klofbragðinu. 1 par gallósíur nr. 44, 3 box hold kjeft molar og svo framvegis. Segir sagan að þessi ágæti pappír hafi borist alla leið til Kanada. Hinn snjalli hagyrðingur og læknir þar í hrepp, Björn Jónsson sem kallaður var Bjössi Bomm, mun hafa ort svo.
Fræðin kunna á Króknum enn
klofbragðs unna tökum.
Blendin nunna brögðin tvenn
bakar í þunnum kökum.