626 einstaklingar á kjörskrá á Blönduósi

Bæjarstjórn Blönduóssbæjar yfirfór kjörskrárstofn á síðasta fundi sínum vegna kosninga til Stjórnlagaþings sem fram fara þann 27. nóvember nk. Kjörskrárstofn byggir á íbúaskrá þjóðskrár 6. nóvember 2010.

Á kjörskrá eru alls 626 einstaklingar, 301 kona og 325 karlar. Bæjarstjórn samþykkti kjörskrárstofn sem kjörskrá í sveitarfélaginu með fyrirvara um hugsanlegar breytingar. Bæjarstjóra var falið að ganga frá kjörskrárstofni og undirrita sem kjörskrá. Kjörskrá Blönduósbæjar liggur frammi á skrifstofu sveitarfélagsins til kjördags.

Fleiri fréttir