63 þúsund þátttakendur í Blóðskimun til bjargar
Viðtökur landsmanna við Blóðskimun til bjargar – þjóðarátaki gegn mergæxlum hafa verið frábærar en nú þegar hafa rúmlega 63 þúsund manns um allt land skráð sig til þátttöku. Þjóðarátakið hófst um miðjan nóvember síðastliðinn þegar 148 þúsund manns á landinu öllu, sem fæddir eru árið 1975 eða fyrr, fengu boð um þátttöku. Því hafa rúm 42% þeirra skráð sig til þátttöku og hefur rannsókninni þegar borist blóðsýni frá um sjö þúsund þátttakendum.
Aðstandendur rannsóknarinnar eru afar þakklátir fyrir viðtökurnar enda er góð þátttaka lykillinn að því að hún skili árangri. Ef þátttakendum heldur áfram að fjölga á næstu mánuðum gæti hún orðið stærsta vísindarannsókn sinnar tegundar sem framkvæmd hefur verið í heiminum.
Þakklátur fyrir viðtökurnar
Sigurður Yngvi Kristinsson prófessor við læknadeild Háskóla Íslands sem fer fyrir rannsókninni segir það einstakt hversu vel landsmenn hafa brugðist við og þannig lagt lið mikilvægri vísindarannsókn. „Ég vil koma á framfæri þakklæti til allra sem hafa skráð sig til þátttöku. Þá vil ég hvetja þau sem ekki hefur gefist ráðrúm til að skrá sig, til þess að kynna sér rannsóknina á www.blodskimun.is og skrá sig til þátttöku ef þeim svo þóknast. Því fleiri sem skrá sig, því meiri líkur eru á að árangur náist,“ segir Sigurður Yngvi.