65 ára gamlar þrær heyra brátt sögunni til

Nú er verið að rífa gömlu síldarþrærnar við höfnina á Skagaströnd og hverfur þá eitt af minnismerkjunum um síldarvinnslu á staðnum. Þrærnar eru rammgerðar og mikil vinna að brjóta í sundur steypuna og klippa járnin. Vel var vandað til verks er hafist var handa við byggingar þeirra haustið 1945.

Á vef Skagastrandar er rakin saga byggingar síldarþrónna sem átti að vera tilbúnar til vinnslu fyrir síldarvertíð 1946  og fór byggingakostnaðurinn langt fram úr áætlun og var ríkisstjórnin mikið gagnrýnd fyrir það. Var stefnt að því að verksmiðjurnar yrðu tilbúnar til vinnslu fyrir síldarvertíð 1946. Þetta samþykkti Alþingi í lok febrúar árið 1945. Svo fór að aflatregðan 1945 markaði upphaf hrun veiða Norðurlandssíldarinnar og örlögin höguðu málum svo að framkvæmdir við nýju verksmiðjuna á Skagaströnd hófust á sama tíma og síldin ákvað að leita á nýjar slóðir.

Sjá nánar HÉR

Fleiri fréttir