7 þingmenn vilja fara gegn vilja heimamanna

Þingmennirnir Sigmundur Ernir Rúnarsson, Tryggvi Þór Herbertsson, Róbert Marshall, Jónína Rósa Guðmundsdóttir, Jón Gunnarsson, Árni Johnsen og Þór Saari skrifa upp á þingsályktunartillögu Sigmundar Ernis þess efnis að fela innanríkisráðherra að hlutast hið fyrsta til um að hafinn verði undirbúningur að gerð nýs vegar á svonefndri Svínavatnsleið .

Er það hugmynd þingmannanna að fjármögnun framkvæmda fari fram með töku veggjalda. Í greinagerð með tillögunni kemur fram að lengi hafi verið horft til þessarar vegstyttingar en heimamenn á Blönduósi og í Húnavatnshreppi hafa hafnað hugmyndinni og gera ekki ráð fyrir leiðinni í sínum aðalskipulögum. Gert er ráð fyrir að leiðin liggi af núverandi þjóðvegi 1 í landi Brekkukots, norðan Svínavatns og tengjast hringveginum aftur við Fagranes í Langadal. Leiðin sé tæplega 17 km löng og styttir hringveginn um allt að 14 km. Þá segir í greinargerðinni að þessi veglagningin verði að teljast ein arðsamasta samgönguframkvæmd sem mögulegt er að ráðast í.

Fleiri fréttir