71 barn á Barnabæ

Jóhanna G. Jónasdóttir, leikskólastjóri Barnabæjar á Blönduósi, lagði fram skóladagatal 2011-2012 fram á fundi fræðslunefndar Blönduóss sl. þriðjudag. Miklar breytingar hafa verið gerðar á innrastarfi leikskólans sem hefur reynst mjög vel. Heildarfjöldi barna er 71 miðað við 1. desember 2011.

 

Ákveðið hefur verið að jólaball leikskólans verði foreldralaust í ár en foreldrum barna sem sjá um helgileik verður hinsvegar boðið að koma og til að sjá hann. Jafnframt er fyrirhugað að fara með helgileikinn upp á HSB til sýningar.

Fleiri fréttir