80 ára afmælisrit Björgunarsveitarinnar Strandar

Út er komið 80 ára afmælisrit Björgunarsveitarinnar Strandar á Skagaströnd. Á vef Landsbjargar kemur fram að ritið sé veglegt, yfir 80 blaðsíður, og í því er að finna ágrip af sögu félagsins 1933-2013.

Farið er yfir veru björgunarsveitarinnar í Slysavarnafélagi Íslands, stofnun Skagastrandadeildarinnar, fyrra og síðara skeið hennar auk ýmiss annars úr starfinu. Í ritinu er einnig fjöldi mynda.

Lárus Ægir Guðmundsson tók saman og skráði.

Fleiri fréttir