90 ára afmæli Karlakórs Bólstaðarhlíðarhrepps

Fyrsta sunnudag í sumri árið 1925 kom Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps saman í fyrsta sinn opinberlega, með söngskemmtun í Þinghúsinu í Bólstaðarhlíð. Af því tilefni bjóða kórfélagar til afmælisfagnaðar í Húnaveri síðasta vetrardag, miðvikudagskvöldið 22. apríl.

Fyrrverandi kórfélagar, svo og allir velunnarar kórsins, eru hjartanlega velkomnir. Þátttöku þarf að tilkynna í síðasta lagi sunnudagskvöldið 19. apríl til Guðmundar Valtýssonar, Páls Sighvatssonar eða Þorleifs Ingvarssonar.

Fleiri fréttir