Á ekki lengur samleið með Framsóknarflokknum

Kristbjörg Þórisdóttir hefur látið af störfum sem formaður landssambands framsóknarkvenna og sagði sig jafnframt úr Framsóknarflokknum.

Kristbjörg sendi frá sér svohljóðandi yfirlýsingu í gær:

„Ég, Kristbjörg Þórisdóttir, formaður landssambands framsóknarkvenna hef látið af störfum sem formaður og sagt mig úr Framsóknarflokknum.

Ástæða úrsagnar minnar er fyrst og fremst sú að ég tel mig ekki lengur eiga samleið með Framsóknarflokknum.

Ég tel að til þess að byggja upp betra samfélag en það sem var hér fyrir hrun þurfi grundvallarbreytingar að eiga sér stað í íslenskum stjórnmálum sem og innan stjórnmálaflokkanna. Bæta þarf vinnubrögð þeirra, lýðræðisvæða þá, tryggja gagnsæi og gæta vel að mögulegum hagsmunatengslum. Einnig þurfa stjórnmálaflokkarnir að tryggja jafnræði beggja kynja í öllu starfi.

Framsóknarflokkurinn hefur unnið mikið verk að ákveðnum breytingum. Ekki hefur þó verið gengið eins langt í grundvallarbreytingum og ég hefði viljað sjá.“

Fleiri fréttir