Á slóðum bókanna: Samstarf horn í horn

Á síðasta ári komu góðir gestir frá Sveitarfélaginu Hornafirði í Skagafjörð til að ræða nánara samstarf á ýmsum sviðum milli þessara sveitarfélaga og má segja að það sé samstarf landshorna á milli. Í anda þessa samstarfs er nú efnt til málþings á vegum Þórbergsseturs, Háskólaseturs Hornafjarðar og Ferðamáladeildar Háskólans á Hólum í Þórbergssetri dagana 28. – 29. maí næstkomandi.

Markmiðið er að vekja athygli á því hvernig hægt er að gera bókmenntaarfinn og nútímabókmenntir að aflvaka nýrra tækifæra í ferðaþjónustu á Íslandi.

Á þinginu fer fram samræða á milli forystumanna í samtökum ferðaþjónustu, rekstraraðila í ferðaþjónustu, menningarfræðinga, rithöfunda, leikara og bókmenntafræðinga. Einnig  koma þýskir blaðamenn í  heimsókn en þeir eru á Íslandi á vegum Sagenhaftes verkefnisins og eru að kynna Ísland vegna bókamessunnar í Frankfurt í október 2011.

-Vonandi sjá sem flestir sér fært að koma í vorið í Suðursveit eina helgi og taka þátt í skemmtilegri dagskrá þar sem  persónur sagnanna  birtast ljóslifandi og náttúruskoðun fær á sig skáldsagnakenndan blæ, segir í tilkynningu frá Hólaskóla.

Dagskrá

Laugardaginn 28. maí .

16:00 Málþingið sett

16:15 Ávarp;  Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri

16:30 Bókmenntir á aðventu: Skúli Björn Gunnarsson Gunnarsstofnun

17: 00 Hallveig og konurnar á Sturlungaöld: Margrét Ákadóttir leikkona

17:30 Umræður,

18:00 Kvöldverður

19:30 Dagskrá á ensku með þátttöku þýskra blaðamanna: Pétur Gunnarsson kynnir Þórberg Þórðarson, Þórbergssetur og sín verk. Umræður og kvöldstund með áhugafólki um bókmenntir og ferðaþjónustu.

Sunnudaginn 29. maí

9:00    Morgunhressing og morgunganga meðal steinanna, sem tala.

10:15 Á slóðum Guðríðar og Hallgríms: Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur

10:45 Orðsins list: Saga og sögur; Guðrún Helgadóttir Háskólanum á Hólum

11:15 Veruleiki  skáldskaparins;.  Soffía Auður Birgisdóttir Háskólasetur Hornafjarðar

11:45 Að búa í heimi skáldævisögunnar; Þorbjörg Arnórsdóttir Þórbergssetur

12:10 Umræður

12:40 Hádegisverður og málþingslok

Fleiri fréttir