ABC barnahjálp auglýsir eftir skráningum í skólann
ABC skólinn auglýsir nú eftir skráningum en hann er vettvangur fyrir þá sem dreymir um að aðstoða börn á erlendum grundvelli. Námskeiðið er einnig sniðið fyrir þá sem vilja hjálpa börnum í þróunarlöndum á óbeinan hátt með sjálfboðavinnu hér heima.
Verðið fyrir þetta námskeið er með lægsta móti að því er kemur fram því allir kennararnir gefa vinnu sína. Verð fyrir 8 vikur frá kl. 9-12 fyrir alla virka daga er kr. 50.000 og eru öll námsgögn innifalin svo og helgarferð sem er í boði skólans.
Áhugasamir sem vilja láta gott af sér leiða í hjálparstarfi eru hvattir til að skrá sig strax á abcskolinn.is. jafnframt að kynna sér rétt sinn á námsstyrk eða aðstoð við greiðslu námskeiðsgjalds.
Skráningarfrestur er til 1. október nk.
Frekari upplýsingar er einnig hægt að finna á heimasíðunni abc.is