Aðalbókari hjá Blönduósbæ

Katrín Benediktsdóttir hefur verið ráðin aðalbókari hjá Blönduósi bæ, en ráðning hennar var samþykkt á bæjarráðsfundi í vikunni. Katrín, hefur unnið  hjá Innheimtumiðstöð sektar og sakarkostnaðar á Blönduósi og stundað nám í viðskiptafræði við Háskólann á Bifröst, Hún hefur störf um miðjan ágúst.

Eins og greint var frá í Feyki í vor stóð til að ráða fjármálastjóra og bárust á sínum tíma 10 umsóknir um stöðuna, en að endurskoðuðu máli var ákveðið að ekki væri þörf fyrir fjármálastjóra og hætt við að ráða í stöðuna. Eftir það var bæjarstjóra falið að auglýsa í staðinn eftir aðalbókara, sem nú hefur verið ráðinn.

 

 

Fleiri fréttir