Aðalfundur Leikfélags Blönduóss

Aðalfundur Leikfélags Blönduóss verður haldinn fimmtudaginn 26. september næstkomandi klukkan 20 í Eyvindarstofu við Norðurlandsveg. Á dagskrá eru hefðbundin aðalfundarstörf auk þess sem farið verður yfir fyrirhugað vetrarstarf en það ræðst af mætingu á fundinn og almennum áhuga hvort af því verðu, að því er segir í auglýsingu frá stjórn leikfélagsins í Glugganum.

Í grein um dreifnám í Austur-Húnavatnssýslu í síðasta Feyki kom fram að nemendur dreifnámsins væru áhugasamir um starfsemi Leikfélagsins og endurvakningu þess.

Fleiri fréttir