Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands á Blönduósi um helgina

Aðalfundur Skógræktarfélags Íslands verður haldinn í Félagsheimilinu á Blönduósi helgina 24. - 26. ágúst. 

„Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa verða flutt fjölbreytt fræðsluerindi og farið í vettvangsferðir um Blönduósbæ og nærsveitir þar sem gestum gefst tækifæri á að kynnast því sem Austur-Húnvetningar eru að gera á sviði trjá- og skógræktar. Hápunktur fundarins er hátíðarkvöldverður í Félagsheimilinu á laugardagskvöld þar sem valinkunnir menn verða heiðraðir fyrir framlag sitt til skógræktar og dans stiginn fram á nótt,“ segir í fréttatilkynningu frá Skógræktarfélaginu.

Samkvæmt fréttatilkynningunni einkennir mikill sóknarhugur og bjartsýni starf Skógræktarfélags Íslands um þessar mundir enda hefur margt gerst á því ári sem liðið er frá síðasta aðalfundi.

Meðal annars festi félagið kaup á jörðinni Úlfljótsvatni í samstarfi við skátahreyfinguna og stóð fyrir vel heppnuðum Jólatrjáamarkaði við Umferðarmiðstöðina.

Að auki sinnti félagið hefðbundnum verkefnum svo sem Landgræðsluskógum, Yrkjugróðursetningum grunnskólabarna og atvinnuátaki í samstarfi við skógræktarfélög og sveitarfélög um land allt.

Dagskrá aðalfundar, starfsskýrslur Skógræktarfélags Íslands og Landgræðslusjóðs og aðrar gagnlegar upplýsingar má nálgast á vefsvæði Skógræktarfélags Íslands. En einnig verður hægt að fylgjast með gangi fundarins á Facebook-síðu Skógræktarfélagsins.

 

Fleiri fréttir