Aðalfundur Sögufélagsins Húnvetningur

Sögufélagið Húnvetningur heldur aðalfund í Húnaveri nk. sunnudag kl. 14. Um þessar mundir eru 75 ár síðan félagið var stofnað og nokkrir félagsmenn munu rifja upp þætti frá starfinu, segir á heimasíðu Húnavatnshrepps.  

Sérstaklega verður Elínborgar Jónsdóttur kennara á Skagaströnd minnst en hún vann ótrauð að útgáfu æviskráa, sem komu út um aldamótin.

„Félagar og aðrir áhugamenn eru boðnir velkomnir í Húnaver en þar í dölunum bjuggu ýmsir sagnaþulir eins og Jónas Illugason, síðar á Blönduósi, Bjarni kennari í Blöndudalshólum og Gunnar prestur á Æsustöðum. Magnús Björnsson bjó út í Vindhælishreppi, á Syðra-Hóli, og var rómaður fyrir þætti sína og skrifaði einnig merka þættir eftir þeim Jónasi og Jósafat á Brandsstöðum. Svipir og sagnir heitir 5. binda ritverk þessara kappa. Um 1975 kom út safnritið Húnaþing sem Sögufélagið átti aðild að, þau bindi urðu alls þrjú,“ segir í frétt á síðu Húnavatnshrepps.

Fleiri fréttir