Aðalfundur Textílseturs Íslands

Aðalfundur Textílseturs Íslands verður haldinn í Kvennaskólanum á Blönduósi í dag, mánudaginn 20. febrúar kl. 14:30. Að þessu sinni verða haldnir tveir aðalfundir, þ.e. fyrir árin 2010 og 2011.

Samkvæmt tilkynningu í nýjasta eintaki Gluggans verður dagskrá fundarins eftirfarandi:

Kosning fundarstjóra og ritara fundarins
Skýrsla formanns
Skýrsla framkvæmdastjóra
Reikningar 2010 og 2011 lagðir fram
Umræða um skýrslur og reikninga
Afgreiðsla reikninga fyrir 2010 og 2011
Kosning fyrir 2010 og 2011
Önnur mál

Einnig er vakið athygli á að prjónakaffi verður haldið fimmtudaginn 1. mars n.k. kl. 20:00. Þá ætlar Hulda Hákonardóttir, markaðsstjóri frá Ístex, að kynna prjónabók nr. 31 frá Ístex og sýna flíkurnar úr bókinni ásamt afmælispeysunni.

 

Fleiri fréttir