Aðalfundur Umf. Hvatar
Aðalfundir aðalstjórnar Umf. Hvatar og knattspyrnudeildar Umf. Hvatar haldnir miðvikudaginn 13. febrúar nk. Báðir fundirnir verða haldnir í norðursal íþróttahússins á Blönduósi. „Komið og kynnið ykkur starfið, kannið málið og komið með hugmyndir,“ segir í auglýsingu í Glugganum.
Á dagskrá verða venjulega aðalfundarstörf. Fundirnir verða sem hér segir:
- Knattspyrnudeild, miðvikudaginn 13. febrúar kl.18:00
- Aðalstjórn, miðvikudaginn 13. febrúar kl. 19:30