Aðalfundur Veiðifélagsins Gljúfurár
Aðalfundur Veiðifélags Gljúfurár verður haldinn að Uppsölum föstudaginn 15. mars kl. 13:00. Á fundinn mæta Kristinn Kristinsson, frá Veiðimálastofnun og Pétur Pétursson, leigutaki.
Samkvæmt auglýsingu í nýjasta eintaki Gluggans verða venjuleg aðalfundarstörf á dagskrá fundarins og breyting á leigusamningi fyrir árið 2013.