Aðalfundur Virkju - Norðvestur konur
„Markmiðið er að sameina krafta kvenna á svæðinu til þess að hvetja konur til áræðni, frumkvöðlastarfs og samfélags- og stjórnmálaþátttöku og síðast en ekki síst hafa gaman af félagsskap hverrar annarar,“ segir á heimasíðu Virkju.
Félagsskapurinn var stofnaður þann 14. október 2009 en sem fyrr segir eru allar konur á Norðurlandi Vestra eru velkomnar, óháð stöðu eða aldri.
Dagskrá aðalfundar:
- Skýrsla stjórnar.
- Stjórn leggur fram endurskoðaða reikninga félagsins.
- Skýrslur starfsnefnda.
- Umræður um skýrslur, ársreikninga, ársreikningur borinn upp.
- Lagabreytingar.
- Ákvörðun félagsgjalda og gjalddaga þeirra.
- Kosning formanns til eins árs.
- Kosning fjögurra aðalmanna og fimm varamanna í stjórn til eins árs.
- Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga og eins varamanns til eins árs.
- Kosning starfsnefnda fyrir næsta starfsár.
- Önnur mál
Kaffiveitingar verða kl. 20:50-21:10 og málþing hefst kl. 21:10-22:00.