Adolf skipar fyrsta sæti Skagastrandarlistans
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Sveitarstjórnarkosningar
29.04.2014
kl. 11.08
Á fjölmennum fundi á Skagaströnd í gær voru kosnir fulltrúar á Skagastrandarlistann vegna sveitarstjórnarkosninganna 31. maí næstkomandi. Eingöngu var kosið í fimm efstu sætin. Adolf H. Berndsen hlaut kosningu í fyrsta sæti listans og Halldór G. Ólafsson í annað sætið. Í þriðja sæti er Róbert Kristjánsson. Húni.is segir frá þessu.
Úrslit kosninganna urðu sem hér segir:
1. Adolf H. Berndsen
2. Halldór G. Ólafsson
3. Róbert Kristjánsson
4. Gunnar S. Halldórsson
5. Jón Ó. Sigurjónsson