Aðstaða til tómstundaiðju og skipulagðar sætaferðir á meðal umræðuefna

Blönduós. Ljósm./BÞ
Blönduós. Ljósm./BÞ

Málefni aldraðra á Blönduósi voru til umræðu á fundi Öldungaráðs Blönduósbæjar þann 28. janúar sl. Í fundargerð kemur fram að þar hafi m.a. verið rætt um að koma þurfi upp aðstöðu fyrir eldri borgara til tómstundaiðju, skipulagðar sætaferðir fyrir eldri borgara innan sveitarfélagsins og aukið samstarf við grunnskóla. Jafnframt kom til umræðu með hvaða hætti sveitarfélagið gæti aukið upplýsingaflæði til eldri borgara.

Varðandi aðstöðu fyrir eldri borgara til tómstundaiðju var rætt um að koma þurfi upp aðstöðu sem ekki passar inn í aðstöðuna sem fyrir er í Hnitbjörgum. Þar er verið að hugsa um t.a.m. minni háttar smíðavinnu, hugsanlega bókband og e.t.v. eitthvað fleira. Í fundargerð segir að upp komu hugmyndir um húsnæði Kvennaskólans í Lönguvitleysu eða Vísishúsið. Nefndin beindi því til sveitarstjórnar að hlutast til um að finna húsnæði fyrir slíka aðstöðu.

„Rætt var um að koma þyrfti á skipulögðum sætaferðum fyrir eldri borgara innan sveitarfélagsins. Sumir einstaklingar eiga ekki hægt um að komast í búð, apótek, banka o.fl. Myndi það auðvelda þeim mikið ef í boði væru ferðir á ákveðnum tímum einhverja daga í viku sem þeir gætu nýtt sér. Sama gildir um viðburði í sveitarfélaginu eða nágrenni, t.d. messur,“ segir í fundargerð. 

Nefndin beindi því til sveitarstjórnar að beita sér fyrir því að slíku verði komið í kring, hvort sem það verður á vegum sveitarfélagsins eða annarra félagasamtaka t.d. Rauða krossins. Þá kom fram að Öldungaráð gæti tilnefnt tengilið sem síðan gæti haft samband við þá sem tilbúnir væru að taka að sér slíkan akstur. Þá óskaði nefndin óskaði eftir því að fá upplýsingar um hvers konar liðveisla er í boði fyrir fatlaða eldri borgara í sveitarfélaginu.

Í fundargerð kemur fram að nefndin beini því til sveitarstjórnar að auka upplýsingaflæði til íbúa sveitarfélagsins. „Nefndin leggur til að sveitarfélagið gefi út fréttabréf mánaðarlega með umfjöllun um það sem um er að vera á vegum þess. Einnig mætti birta fleiri fréttir á heimasíðu sveitarfélagsins.“

Loks var rætt var um að auka mætti samstarf grunnskólans við eldri borgara, t.d. að fá grunnskólanema til að kenna eldri borgurum á tölvur o.fl. Ákveðið var að Öldungaráð myndi setja sig í samband við Rauða krossinn og ræða hvaða verkefnum hægt sé að koma á fót milli þeirra og eldri borgara.

Fleiri fréttir