Aðstandendur Alzheimerssjúklinga með fund á morgun
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
06.04.2011
kl. 11.45
FAAS, félag áhugafólks og aðstandenda Alzheimerssjúklinga og annarra skyldra sjúkdóma heldur fræðslu- og upplýsingafund á Sauðárkróki á morgun fimmtudaginn 7. apríl. Fundurinn verður haldinn í Húsi frítímans við Sæmundargötu á Sauðárkróki kl. 17:30.
Dagskrá:
- - Ingibjörg Magnúsdóttir, varaformaður FAAS setur fundinn og segir frá starfi félagsins.
- - Guðlaug Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur á minnismóttöku Landakots flytur erindi sem hún nefnir Umönnun og samvera. Hún fjallar m.a. um:
- - Áhrif viðmóts og framkomu á líðan einstaklinga með heilabilun og fjölskyldur þeirra.
- - Hvernig aðlaga má umhverfið að þörfum einstaklings með skerðingu á vitrænni getu.
- - Hvernig vinna má með styrkleika í stað þess að einblína á veikleika.
Félagsmenn og aðrir velunnarar félagsins eru hvattir til að mæta, allir eru velkomnir.