Æskan og hesturinn komin á DVD
Sýningin Æskan og hesturinn, sem haldin var síðastliðið vor í Reiðhöllinni Svaðastöðum, er komin til sölu á DVD-diski.
Fjölmennt var á sýningunum og fjölbreytt atriði í boði. Þar sýndu börn frá hestamannafélögum á norðurlandi margvíslega munsturreið, þrautabrautir og fimleika á hestum. Þar mátti einnig sjá Mjallhvíti og dvergana sjö, indíána og kúreka, prinsessur og prinsa, Línu langsokk og fleiri ævintýraverur.
DVD-diskurinn kostar 2500 og hægt er að nálgast hann á Snyrtistofunni Tánni á Sauðárkróki. Einnig er hægt að hafa samband með því að senda tölvupóst á lettfetar@gmail.com eða vjmyndir@fjölnet.is.