Ætla að veita afslátt af gatnagerðargjöldum
Sveitarstjórn Skagastrandar hefur samþykkt að auglýsa sérstaklega byggingarlóðir við þegar tilbúnar götur þannig að veittur verði afsláttur allra gatnagerðagjalda vegna bygginga á lóðunum. Sveitarstjórn samþykkti jafnframt að eftirfarandi ákvæði gildi um úthlutun allt að fjögurra íbúðarhúsalóða sem afslátturinn muni ná til.
Umsóknir um lóðirnar skulu berast eigi síðar en 1. maí 2018 en umsóknir sem berast á umsóknarfresti verða afgreiddar af skipulags-og byggingarnefnd eftir því sem efni standa til og gildir röð umsókna um nýtingu fyrrgreinds afsláttar.
Við úthlutun lóðanna skulu gilda ákvæði um að byggingarframkvæmdir skuli vera hafnar innan árs frá úthlutun og að byggingar skuli hafa hlotið fokheldisvottorð innan tveggja ára, að öðrum kosti fellur niður ákvæði um afslátt gatnagerðagjalda. Samtals eru í boði 17 lausar lóðir við þegar tilbúnar götur.