Ætla í sókn á Norðurlandi
Öryggismiðstöð Norðurlands og Eldvarnamiðstöð Norðurlands hafa sameinast undir merkjum Öryggismiðstöðvar Norðurlands. Öryggismiðstöð Norðurlands er dótturfélag Öryggismiðstöðvarinnar. Ómar Örn Jónsson, markaðsstjóri Öryggismiðstöðvarinnar, segir sameininguna lið í sókn félagsins á Norðurlandi, að því er fram kemur á visir.is.
„Félagið er í sókn og hyggst auka markaðshlutdeildina fyrir norðan. Sameiningin er liður í því en Eldvarnamiðstöð Norðurlands er rótgróið fyrirtæki á svæðinu,“ segir hann.
Eldvarnamiðstöðin hefur hingað til fyrst og fremst selt ýmsan öryggisbúnað og Ómar segir sameininguna munu verða til þess að þjónusta á sviði öryggismála á svæðinu batni og úrval þjónustu stóraukist.
„Þetta mun leiða af sér bætta þjónustu á þessum markaði og aukna samkeppni, neytendum til hagsbóta,“ segir Ómar.
Samhliða sameiningunni er fyrirhugað að félagið bæti við sig um fjórum starfsmönnum, en sjö manns starfa fyrir félagið eins og sakir standa. Helgi Jóhannsson verður framkvæmdastóri félagsins.