Ævintýri í Skrapatungurétt - Stóðsmölun og réttir í Austur-Húnavatnssýslu
Dagana 17. og 18. september verður mikið fjör í Austur-Húnavatnssýslu, stóðsmölun á Laxárdal og réttir í Skrapatungurétt. Gestir eiga þess kost að slást í för með gangnamönnum í eyðidalnum Laxárdal og taka þátt í alvöru þjóðlegu ævintýri.
Þátttakendur leigja hesta hjá heimamönnum eða mæta með sína eigin hesta. Stóðhrossin verða rekin til byggða á laugardaginn 17. september. Lagt er af stað frá Strjúgsstöðum í Langadal kl. 10 og síðan riðið sem leið liggur um Strjúgsskarð og norður Laxárdal. Athugið að aðstaða til að geyma hross nóttina fyrir smölunardag er við sandnámu við Strjúgsstaði (norðan afleggjara). Þátttakendur eru beðnir að virða að ekki er leyfilegt að reka laus reiðhross í stóðsmöluninni.
Að Kirkjuskarðsrétt á Laxárdal er hópurinn kominn um kl 14. Þar hvíla hestar og menn og fá sér að eta og drekka eftir þörfum. Veitingar verða seldar á staðnum. Ráðgert er að leggja af stað kl. 16 frá Kirkjuskarði. Þaðan er riðið norður í Skrapatungrétt sem er ein myndarlegasta stóðrétt landsins. Gestir og heimamenn heillast ávallt af tignarlegu stóðinu.
Ferðamannafjallkóngur líkt og áður verður Valgarður Hilmarsson. Hann er heimavanur á þessum slóðum og mun sjá um fararstjórn og leiðsögn ferðamanna í stóðsmöluninni. Fyrir þá sem heldur vilja koma á bíl til að fylgjast með gangnamönnum og réttarstörfum, er rétt að benda á að Skrapatungurétt er í um 15 mín. akstur frá Blönduósi, ekið er um Skagastrandar-og Laxárdalsveg, en fram að Kirkjuskarðsrétt er aksturstími um 30-40 mín.
Veitingar eru fyrir svanga smala og aðra gesti á Pottinum Restaurant Blönduósi.
Á laugardagskvöldið leikur besta stóðréttarhljómsveit landsins Paparnir fyrir dansi í Félagsheimilinu Blönduósi. Húsið opnar kl. 23:00. Barinn opinn. 18 ára aldurstakmark.
Á sunnudagsmorgun hefjast réttarstörf í Skrapatungurétt um kl. 11. Bændur ganga í sundur hross sín og reka þau svo í lok dags til síns heima. Oft finna karlar og konur sinn draumagæðing í smalamennskunni eða í réttunum.
Stóðréttarhelgi Skrapatunguréttar er hátíð heimamanna og ferðafólks þar sem er spilað, sungið og skemmt sér að íslenskum sið.
Allir gestir eru hjartanlega velkomnir. Nánari upplýsingar fást hjá ferðamannafjallkóngi í síma: 893 2059 eða á netfangi vallih@centrum.is.