Ævintýri tvíburanna á Spáni
Út er komin bókin Ævintýri tvíburanna á Spáni eftir Birgittu Hrönn Halldórsdóttur frá Syðri-Löngumýri í Blöndudal og er hún sjálfstætt framhald af Ævintýrum tvíburanna sem kom út 2011. Sagan um tvíburana naut mikilla vinsælda ungu kynslóðarinnar og ekki síður þeirra eldri enda eru ævintýri alltaf skemmtileg fyrir bæði börn og fullorðna. Það eru Töfrakonur/Magic Women ehf. sem gefa út.
Tvíburarnir Bjössi og Begga, búa í Blómabrekku í Húnavatnshreppi. Þar hefur heldur betur bæst við fjölskylduna, þar sem aðrir tvíburar hafa nú litið dagsins ljós.
Þau fara í eftirminnilegt páskafrí til Spánar með vinum sínum og eldsprækum ömmum. Þar lenda þau í bardaga við spænsku mafíuna, heimsækja Afríku og upplifa margvísleg ævintýri þar sem allskonar fólk kemur við sögu.
Sagan lýsir vel kátum og glöðum krökkum í Húnavallaskóla og skemmtilegu lífi þeirra innan skólans og utan hans. Bókina prýða skemmtilegar og líflegar myndir eftir Ernu Hrönn Ásgeirsdóttur.