Aflétta rýmingu á svæði 18 í Neskaupstað

Myndir frá Neskaupsstað: /Landsbjörg
Myndir frá Neskaupsstað: /Landsbjörg

Í tilkynningu Lögreglunnar á Austurlandi kemur fram að fundað hafi verið með Veðurstofu í morgun þar sem staðan var metin á Austfjörðum m.t.t. snjóflóðahættu og veðurs framundan. Ákveðið var að aflétta rýmingu á svæði 18 í Neskaupstað.

„Vegna aðstæðna á svæðinu og slæmrar veðurspár á morgun, annað kvöld, verður ekki að svo stöddu tekin ákvörðun um frekari afléttingu. Veðurstofa metur aðstæður og ef þær breytast hvað rýmingu varðar mun það kynnt.

Heimilt er íbúum að sækja vistir og annað frá heimilum sínum á rýmingarsvæði. Vegna veðurs framundan er rétt að nýta daginn í dag. Þeir sem hyggjast nýta sér það eru beðnir um að fara áður í björgunarsveitarhús á sínu svæði þar sem skráning fer fram og fylgd,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.

Meðfylgjandi er myndskeið frá Seyðisfirði sem Landsbjörg sendi fjölmiðlum í gær.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir