Aflvaki í héraði - opinn fundur um sóknaráætlun í dag

Opinn fundur verður í Miðgarði í dag, miðvikudaginn 10. júní kl. 17:00, um sóknaráætlun Norðurlands vestra 2015-2019. Fjallað verður um stöðu Norðurlands vestra í menningarmálum, nýsköpun og atvinnuþróun, uppbyggingu mannauðs og lýðfræðilegri þróun svæðisins.

Að sögn Bergs Elíasar Ágústssonar framkvæmdarstjóra SSNV er áætlunina ætlað að vera ákveðinn aflvaki í héruðunum og viðleitni til þess að virkja íbúa svæðisins.

„Þessu fylgja ákveðnir fjármunir og þeir hafa verið tengdir þessum menningarverkefnum, síðan litlum nýsköpunarverkefnum og slíkt til að örva þessa frumkvöðlastarfsemi og gefa fólki séns á að hrinda sínum hugmyndum í framkvæmd,“ útskýrði Bergur en sóknaráætluninni var fyrst komið á árið 2012.

„Síðan varð ákveðin breyting á þessu fyrirkomulagi og skrifað undir samning þess efnis í febrúar síðastliðnum. Á fundinum erum við í raun og veru erum að hittast og fara yfir sóknaráætlunina og spyrja hvort þurfi að setja einhverjar nýjar áherslur inn í hana sem menn munu þá vinna eftir,“ sagði Bergur um umfjöllunarefni fundarins.

Fundurinn er öllum opinn og eru íbúar hvattir til að mæta og taka þátt í að móta stefnu og áherslur landshlutans. Samninginn er að finna á heimasíðu SSNV.

Bergur Elías er í viðtali í Feyki vikunnar sem kemur út á morgun.

Fleiri fréttir