Aflýst vegna dræmrar þátttöku
feykir.is
Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla
12.09.2013
kl. 09.59
Fundi um ferðaþjónustu og markaðssetningu hennar erlendis, sem vera átti á Blönduósi í gær, var aflýst vegna dræmrar þátttöku. Fyrirhugaður fundur var á vegum Íslandsstofu og var hagsmunaaðilum í ferðaþjónustu boðið til skrafs og ráðagerða um brennandi mál í ferðaþjónustu.
Um var að ræða fund í vetrarherferð Íslandsstofu og má lesa um fundarröðina hér.
