Afmælissýningu Neista frestað vegna slæmrar veðurspár
Afmælissýning Neista sem fyrirhugað var að halda á morgun, sunnudaginn 28. apríl, hefur verið frestað vegna slæmrar veðurspár. Sýningin verður þess í stað haldin sunnudaginn 5. maí.
Hestamannafélagið Neisti var stofnað í Dalsmynni 1943 og er því 70 ára í ár. Í tilefni afmælisins verða Neistafélagar með sýningu í Reiðhöllinni Arnargerði þar sem taka munu þátt knáir knapar á aldrinum 2 til 67 ára. Hestakosturinn i sýningunni verður allt frá þægum og góðum barnahestum til margreyndra keppnisgæðinga.
Að sýningu lokinni verður afmæliskaffi i boði félagsins.