Áform um lagfæringar á Blöndubrú

Frá Blönduósi. Mynd: KSE.
Frá Blönduósi. Mynd: KSE.

Samkvæmt frétt á vef Húnahornsins í síðustu viku áformar Vegagerðin að lagfæra og bæta þjóðveginn í gegnum Blönduós og Blöndubrú. Endurnýja á gólf brúarinnar og setja á hana nýtt handrið. Áætlaður kostnaður nemur um 30 milljónum króna.

Samhliða framkvæmdunum verður vegurinn beggja megin við brúna breikkaður og er áætlaður kostnaður við það um 10 til 15 milljónir króna. Engin ákvörðun hefur verið tekin um tímasetningu framkvæmda en þær eru háðar því að fjármagn fáist í nýrri samgönguáætlun, segir í frétt á Húnahorninu.

Þar segir ennfremur að á fundi sveitarstjórnar Blönduósbæjar í október hafi verið rætt um þessa framkvæmd, sem og mögulega göngubrú neðan núverandi Blöndubrúar, en frumkostnaðaráætlun við hana var um 80 milljónir. Þá var rætt um gömlu brúna og aðkomu Vegagerðarinnar að því að sandblása hana og mála ásamt því að setja hana upp og ganga frá brúargólfi ef hún yrði sett upp við Hrútey. 

Fleiri fréttir