Áfram frost á Norðurlandi

Veðurstofan gerir ráð fyrir norðan 5-10 og dálítilli él, en hægari og vestlægari austantil eftir hádegi á Ströndum og Norðurlandi vestra. Norðan og norðvestan 5-13 og snjókoma í fyrramálið. Frost 2 til 8 stig, en 0 til 5 stig á morgun.

 

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:
Norðlæg átt 5-10. Snjókoma eða él norðanlands, en úrkomulítið um landið S-vert. Frost 2 til 12 stig, kaldast inn til landsins.

Á miðvikudag:
Norðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og él N- og A-til, en norðaustan 5-13 og skýjað með köflum syðra. Hiti breytist lítið.

Á fimmtudag:
Hæg breytileg átt og úrkomulítið en norðvestan 5-13 og él við NA-ströndina. Frost 0 til 10 stig, minnst úti við sjóinn.

Á föstudag:
Hvöss sunnan og suðvestanátt með rigningu eða slyddu en þurrt að kalla NA-til. Hiti 0 til 6 stig, svalast NA-til.

Á laugardag:
Suðvestanátt með skúrum eða slydduéljum um vestanvert landið. Heldur kólnandi í bili.

Á sunnudag:
Útlit fyrir áframhaldandi suðlæga átt með mildu veðri og vætusömu, einkum S- og V-til.

Fleiri fréttir