Áfram hráslagalegt veður
Kalt hefur verið undanfarnar daga og í gær mátti sjá víða hvíta jörð, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd frá Hólum í Hjaltadal. Spáin segir til um áframhaldandi kulda og bleytu, með vonarglætu um hlýnandi veður um miðja næstu viku.
Í dag verður minnkandi norðanátt og él, 3-8 m/s og þurrt síðdegis. Hiti 0 til 5 stig, en vægt frost í nótt.
Spá næstu daga:
Á föstudag:
Norðvestan 5-10 m/s austast, annars hægari vindur. Skýjað með köflum og smáskúrir V-lands. Hiti 1 til 6 stig, en víða vægt frost N- og A-lands. Vaxandi suðaustanátt með rigningu eða slyddu SV-til um kvöldið.
Á laugardag:
Suðaustan 10-20 m/s, hvassast S- og V-lands. Rigning, en slydda eða snjókoma um tíma NA-til. Mun hægari og rigning eða skúrir síðdegis. Hlýnandi í bili.
Á sunnudag:
Vestlæg átt og skúrir eða slydduél, en þurrt á A-verðu landinu. Hiti 2 til 10 stig, mildast SA-lands.
Á mánudag og þriðjudag:
Norðanátt og úrkomusamt á N-verðu landinu, en þurrt S-lands. Svalt í veðri.
Á miðvikudag:
Útlit fyrir suðaustanátt og hlýnandi veður.