Áfram kalt næstu daga

Á Ströndum og Norðurlandi vestra er hægt vaxandi norðaustanátt og stöku él, 8-13 m/s síðdegis. Frost 1 til 8 stig. Í veðurkortum Veðurstofu Íslands er norðaustan 10-15 og él á morgun.

Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni er lítil hálka á Norðurlandi vestra en hálkublettir á fáeinum útvegum.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á þriðjudag:
Norðan 10-15 m/s og él, en þurrt og bjart á S- og SV-landi. Norðan hvassviðri og snjókoma N- og A-lands um kvöldið. Frost 0 til 8 stig, mildast syðst.

Á miðvikudag:
Hvöss norðaustanátt og snjókoma í fyrstu á Vestfjörðum. Annars talsvert hægari vindur og stöku él, en bjartviðri SV-til. Áfram kalt í veðri.

Á fimmtudag:
Norðaustan 8-13 m/s og él, en þurrt SV- og V-lands. Hiti 0 til 5 stig að deginum, en vægt frost fyrir norðan og austan.

Á föstudag, laugardag og sunnudag:
Ákveðin austan- og norðaustanátt. Él SA- og A-lands, annars úrkomulítið. Fremur kalt.

Fleiri fréttir