Áfram kalt næstu daga
Á Norðurlandi vestra er snjóþekja á Þverárfjallsvegi og við utanverðan Skagafjörð en annars staðar er ýmist autt eða hálkublettir, hálkublettir eru einnig á Öxnadalsheiði. Á Þverárfjalli er enn varað við mjög ósléttum vegi og hraði því tekinn niður í 70 km/klst. Ásþungi er takmarkaður við tíu tonn.
Á Ströndum og Norðurlandi vestra verður norðlæg átt í dag, 3-8 og skýjað en úrkomulítið. Snýst í suðvestan 5-13 síðdegis og með slyddu eða snjókomu í kvöld. Vægt frost en hlýnar í kvöld.
Samkvæmt spá Veðurstofunnar verður suðvestan 5-10 og rigning á morgun en snýst í norðan 8-13 síðdegis með slyddu og síðan snjókomu og kólnar aftur.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á laugardag:
Vestlæg átt, 8-15 m/s en hvassari við suðurströndina. Rigning víða vestantil en allvíða slydda til landsins. Skúrir eða él vestanlands síðdegis en gengur í norðan 5-13 norðantil um kvöldið með dálítilli snjókomu, fyrst á Vestfjörðum. Milt veður til kvölds, en frystir síðan.
Á sunnudag:
Norðan 15-23 m/s, fyrst á Norðvesturlandi síðan norðaustantil en norðan 13-20 um landið sunnanvert. Snjókoma og skafrenningur en yfirleitt þurrt sunnan og suðvestantil. Dregur hægt úr vindi vestantil um kvöldið, með éljum NV-til. Frost 0 til 7 stig, en frostlaust með suðurströndinni.
Á mánudag:
Norðan 8-15 m/s en dregur smám saman úr vindi. Léttir til, fyrst vestanlands, en él austantil. Kalt í veðri.
Á þriðjudag:
Norðvestan 5-10 við NA-ströndnina, en annars hæg breytileg átt. Víða bjartviðri og frost um mest allt land en hlánar við SV-ströndina yfir hádaginn.
Á miðvikudag:
Norðaustlæg eða breytileg átt og bjartviðri. Áfram kalt í veðri.
Á fimmtudag:
Suðlæg átt og bjartviðri en norðaustan strekkingur og slydduél eða skúrir SA-lands. Hægt hlýnandi.