Áfram leitað að ísbirninum

Í dag verður leit haldið áfram að ísbirninum sem talið er að sé á ferðinni einhvers staðar við Húnaflóa. Leit stóð yfir með þyrlu Gæslunnar í allt gærkvöld en var hætt á miðnætti. Þyrlan mun hafa farið aftur í loftið um klukkan 10 í morgun og verður leitað frá Stöndum og út á Skaga.

Á Húna.is segir að allar líkur séu á því að ísbjörn sé á ferðinni einhvers staðar við Húnaflóa. Áhöfn þyrlu Landhelgisgæslunnar fann spor, sem talin eru eftir hvítabjörn, í fjörunni neðan við Geitafell á utanverðu Vatnsnesi í gær, en ítalskir ferðamenn urðu bjarnarins varir og létu vita.

Kristján Þorbjörnsson,  yfirlögregluþjónn á Blönduósi segir í samtali við Ríkisútvarpið að stórt svæði sé undir en leitað verði þar til dýrið finnst. Í gærkvöldi hafi Vatnsnesið verið fínkembt og frekar leitað á öðrum stöðum með morgninum. Ísbirnir beri sig fljótt yfir og leitað verði við Húnaflóann allan. Þeir geti synt langt og hratt og gæti verið kominn út á Strandir eða Skaða eða þá haldið til hafs á ný.

Fólk er beðið að hafa vara á sér og láta vita ef það sér eitthvað óvenjulegt. Ekki er hægt að benda á neinn sérstakan stað sem sé öðrum hættulegri.

Mikið er af ferðafólki á svæðinu, og margir útlendir ferðamenn, sem Kristján vonar að náðst hafi til í náttstað í gær.

Best er að leita úr lofti og ekkert kemur í stað þyrlu við hvort sem er leit eða björgun segir Kristján.

/Húni.is

Fleiri fréttir