Áfram milt veður
Veðrið er fallegt núna í Skagafirði, hægur vindur og bjart yfir að líta.
Spáin segir til um svipað veður og var í gær með austan og norðaustan 3-10 m/s, hvassast á annesjum. Skýjað með köflum og sums staðar lítilsháttar súld eða rigning við sjóinn. Hiti 7 til 13 stig.