Áfram spáð hvössu í dag – Veðurstofan gefur út viðvörun
Það er enn sperringur í spánni þó svo að nóttin hafi verið friðsamari nú en áður. Spáin gerir ráð fyrir suðvestan 15 – 23 m/s og él. Lægir í nótt og fyrramálið og dregur úr éljum. Norðvestan og vestan 3 – 8 m/s síðdegis á morgun og stöku él. Frost 0 – 8 stig.
Hvað færð á vegum varðar er best að segja sem minnst og minna á að athuga vel með veður og færð áður en lagt er á fjallvegi.