Áframhald á ljósmyndasýningunni í Íþróttamiðstöðinni á Blönduósi
feykir.is
Austur-Húnavatnssýsla, Listir og menning
28.07.2013
kl. 13.17
Vegna fjölda áskorana verður áframhald á ljósmyndasýningunni í Íþróttamiðstöðinni en þar sýna 5 áhugaljósmyndarar myndir sýnar.
Sýningin var opnuð á Húnavöku og hefur vakið verðskuldaða athygli sundlaugargesta og annarra gesta íþróttahússins. Þarna er á ferðinni skemmtileg sölusýning og hefur fjöldi mynda selst og eru ljósmyndararnir sífellt að skipta út myndum sem selst hafa fyrir nýjar myndir. Sjón er sögu ríkari. Húni.is segir frá þessu.