Áframhaldandi eftirlitsverkefni með veitingahúsum

Nú í maí verður haldið áfram með eftirlitsverkefni, sem fór fyrst af stað með fyrir tveimur árum, á veitingahúsum á Norðurlandi vestra. Þetta kemur fram á heimasíðu Heilbrigðiseftirlits Norðurlands vestra.
Markmið verkefnisins er að koma á móts við sjónarmið um bætta upplýsingagjöf til neytenda, með því að birta ljósmyndir úr eftirliti á veitingahúsum á heimasíðu eftirlitsins. Sömuleiðis að veita upplýsingar um afmarkaða tilgreinda þætti í rekstri veitingastaða. Það eru þættir sem eiga við alla staði, hvort sem þeir eru stórir eða smáir. Í ár verða kannaðir sömu þættir og í fyrra þ.e kannað ástand fatnaðar starfsfólks, hitastigsskráningar, þrifaáætlunar og salerni gesta.